25.3.2008 | 21:12
Beijing 2008
Nú styttist óðum í næstu ólimpíuleika. Hugmyndin á bakvið leika þessa á sínum tíma var að sameina þjóðir undir eitt merki. Er það ekki táknrænt að merkið í ár skuli lýsa einmitt kínversku samfélagi með allri sinni kúgun og valdbeitingu.
Ég er viss um að rúmur miljarður manna þar í landi skammist sín fyrir ástandið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.3.2008 kl. 10:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2008 | 11:04
Ekki-frétt ársins
Hrökk heldur betur í kút í dag þegar ég las á visi.is að Þórarinn Tyrfingsson ætlaði að hætta hjá SÁÁ Ég hugsaði mér með mikið var. Það er löngu kominn tími á þennan fyrrum héraðslækni Húnaþings-vestra og hans krumpaða viðmót Um leið vaknaði spurningin um það hvort mágur hans hann Hjalti Björnsson væri ekki örugglega líka á förum. Mikil gæfa og blessun yrði það nú fyrir SÁÁ ef þessir blessuðu menn stigju nú af stalli sínum og leifðu einhverjum góðum manneskjum að sjá um hið frábæru samtök áhugamanna um áfengis og vímuefnavandan. Ég er viss um að það væri mikið gæfuspor fyrir samtökin. Það var hins vegar skammgóður vermir þegar nánar var að gáð (sjá myndskeið) því ekkert í viðtalinu við Þórarinn bendir til þess að hann sé að fara að hætta. Spurningunni um það hvort Þ.T. sé að fara að deyja væri alveg eins hægt að svara á sama hátt og slá upp fullyrðingunni Þórarinn Tyrfingsson að fara að deyja. Nei því miður þá óttast ég það að þeir félagarnir haldi áfram að halda sínu kverkataki á mönnum og málefnum SÁÁ í næstu framtíð og láti ekki af fyrr en um sjötugt amk.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.1.2008 | 16:01
Af þumburum og hrokagikkjum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.12.2007 | 20:00
Að lokinni umræðu...........
Stóð í smá þrasi á öðrum vettvangi undanfarna daga og mátti því ekki vera að því að sinna þessari köllun minni. Hér í sveitinni er svo sem ósköp fábásreytt líf ef undan eru skildar daglegar gegningar og þar af leiðandi smá argaþras kærkomin viðbót við daglegt amstur frábreytilekans. Þar sem eigandi hinnar annars ágætu spjallsíðu sem ég þvældist inná kýs að draga umræðuna í hlé, ætla ég aðeins að punkta niður hluta af mínu síðasta innleggi, svona rétt til málamynda. Svona er nú það:
Það er athyglisvert að fylgjast með skrifum einstaklings sem kýs að kalla sig Hörður Svavarsson á þessu spjalli og reynist vera einhver sjálfskipaður útvörður SÁÁ. Hann berst um á hæl og hnakka í einhverskonar lygavef sem hann nær ekki að halda utanum. Dæmi: Hörður fullyrðir að Þórarinn Tyrfingsson kenni útskrifuðum ráðgjöfum SÁÁ MI. Sjálfur er einstaklingurinn sem kýs að kalla sig Hörður Svavarsson á lista yfir það fólk, en velur að orða fullyrðinguna mjög loðið: Þeir sem veljast til þeirrar þjálfunar hafa í flestum tilfellum lokið ráðgjafanámi eða unnið lengi hjá SÁÁ. Innan SÁÁ kannast hinsvegar ráðgjafar sem unnið hafa þar lengi ekki við þetta nám. Gott og vel, þegar fagfélagið, sem stjórnað er af mági Þórarins Tyrfingssonar, ákveður að brjóta landslög og selja ólöglega kópíu af erlendri DVD útgáfu af þessu efni, vill svo einkennilega til, samkvæmt fullyrðingu mannsins sem kýs að kalla sig Hörð Svavarsson, að einhver einstaklingur sem vann áður hjá plötufyrirtæki en vinnur nú hjá LSH verður fyrir valinu en ekki meðlimir FÁR sem starfandi eru hjá SÁÁ og unnið hafa lengi og lokið námi í áfengis- og vímuefnaráðgjöf, eins og til dæmis einstaklingur sem kýs að kalla sig Hörð Svavarsson. Er ekki eitthvað bogið við þetta allt saman ? Þegar ég kynnti mér lista yfir útskrifaða ráðgjafa hjá SÁÁ og þá sem vitað er að hafa unnið lengi hjá fyrirtækinu kemur í ljós að stór hluti þessara einstaklinga kemur lítið sem ekkert nálægt beinni meðferð hjá fyrirtækinu þ.e. eru yfirmenn dagskrárstjórar eða ráðgjafar starfa á öðrum sviðum sbr einstaklinginn sem kýs að kalla sig Hörð Svavarsson. Jafnframt kom í ljós eftir tvö símtöl að amk tveir þeirra örfáu ráðgjafa sem eru í eldlínunni hjá SÁÁ, þ.e. vinna við beina meðferð, hafa enga slíka þjálfun fengið og kannast yfir höfuð ekki við hana m.ö.o . hin meinta kennsla Þórarins Tyrfingssonar er ekki að nýtast í starfasemi stofnunarinnar svo heitið geti.
Annað merkilegt í öllu þessu máli er að enginn skuli stíga fram og staðfesta orð mannsins sem kýs að kalla sig Hörð Svavarsson, hvorki í stjórn FÁR né SÁÁ. Er hugsanlegt að þeir aðilar sem málið varðar þar á bæ (FÁR er líka staðsett að Stórhöfða (í sama húsi og SÁÁ)) veigri sér við að taka þátt í lygaþvælunni og stefni á að þagga málið bara í hel ?
Einstaklingurinn sem kýs að kalla sig Hörð Svavarsson kvartar sáran yfir því að smjörklípu aðferðir hans virki ekki á einstaklinginn sem kýs aða kalla sig Jóhannes Krog. Jafnframt sér einstaklingurinn sem kýs að kalla sig Hörð Svavarsson ástæðu til að deila því með lesendum að hann hafi ekki hlotið náð fyrir augum aðaleigenda SÁÁ Þórarni Tyrfingssyni né yfirforingja FÁR og helsta meðreiðarsveini Þórarins, þegar sóst var eftir frama innan þeirra vébanda. Ekki veit ég hverju veldur en ef skoðað eru innlegg mannsins sem kýs að kalla sig Hörð Svavarsson á heimasíðu SÁÁ undir liðnum umræðan má vera ljóst að þar eiga þeir hauk í horni. Er ekki einstaklingnum, sem kýs að kalla sig Hörð Svavarsson, vorkunn ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.12.2007 | 11:07
Formleg opnun
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
jóhannes Krog
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar